Innlent |

Bæjarstjórinn rekinn í Garði

Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri í Garði var rekinn frá störfum á auka bæjarstjórnarfundi nú í kvöld. Að sögn Ásmundar snýst uppsögnin og þær breytingar sem urðu á meirihlutanum í bæjarstjórn um helgina um málefni skólans. Hann frétti fyrst af uppsögninni á vefmiðlum í dag.

Mest lesið

  1. Tom Cruise: Á Íslandi að vinna á afmælisdaginn
  2. Reyna að róa Rihönnu
  3. Gömul ösp barkarflett
  4. Blómvöndur frá Jennifer Aniston
  5. Metanbílaeigendur í hremmingum

Brettaíþróttin blómstrar sem aldrei fyrr

„Það er frábært veður og gott færi og örugglega eitthvað rúmlega 100 manns í brekkunum," segir Linda Björk Sumarliðadóttir hjá Brettafélagi Íslands, en félagið stendur í kvöld fyrir Sumarglensi í Bláfjöllum. Brettaíþróttin er orðin mjög sterk hér á landi og margir sem vilja nota færið meðan hægt er.

Jafnrétti í nýrri ríkisstjórn

Jafnt kynjahlutfall er í nýrri ríkisstjórn Frakklands, 17 konur og 17 karlar. Þrátt fyrir það eru karlar í mörgum af helstu ráðuneytunum. Formaður Sósíalistaflokksins, Martine Aubry, hafnaði ráðherrasæti þrátt fyrir að hafa verið boðið veigamikið ráðuneyti, samkvæmt frétt BBC.

Bölsýni á markaði

Grikkland hafði meiri áhrif á fjárfesta í Bandaríkjunum í kvöld heldur en jákvæðar fregnir úr bandarísku efnahagslífi. Þrátt fyrir hækkun fyrr í dag lækkuðu allar helstu hlutabréfavísitölurnar á Wall Street.

Haukar skoruðu 31 mark - Viktor Segatta með 10 mörk

1. deildarliðið Hauka í Hafnarfirði rótburstaði 3. deildarlið Snæfells úr Stykkishólmi þegar liðin áttust við í 2. umferð bikarkeppni KSÍ í knattspyrnu í kvöld. Haukar skoruðu hvorki fleiri né færri en 31 mark en heimamenn í Snæfelli ekki neitt.

teljari.is